„Ég er ekki búin að taka mér frídag í tvö og hálft ár“: Álag og líðan leik- og grunnskólastjóra í COVID-19
Open Access
- 4 December 2025
- journal article
- Published by The National and University Library of Iceland in Netla
Abstract
Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á upplifun leik- og grunnskólastjóra af forystuhlutverki sínu á tímum COVID-19 heimsfaraldursins. Rannsóknin byggir á eigindlegum viðtölum við sex leikskólastjóra og fjóra grunnskólastjóra sem tekin voru á vordögum 2022. Niðurstöðurnar sýna að skólastjórnendur stóðu frammi fyrir fordæmalausum áskorunum og aukinni ábyrgð, þar sem starfssvið þeirra víkkaði verulega. Þeir sinntu nýjum verkefnum eins og sóttvörnum, smitrakningu og umfangsmeiri samskiptum við starfsfólk og foreldra. Á sama tíma fundu þeir fyrir sterkri siðferðislegri skyldu til að hlúa að velferð annarra, oft á kostnað eigin líðanar. Álag jókst verulega og mörk milli vinnu og einkalífs urðu óljós. Mikil tilfinningavinna og skortur á faglegum og kerfisbundnum stuðningi leiddu til andlegrar og líkamlegrar þreytu og í sumum tilvikum til vanmáttar og gremju gagnvart stjórnsýslu og yfirvöldum. Margir lýstu jafnframt áhyggjum af mögulegum langtímaáhrifum á líðan sína og starfsgetu. Þrátt fyrir það kom fram djúpstæð seigla, faglegt stolt og sterk samstaða innan stjórnendateyma. Rannsóknin byggir á kenningum um tilfinningavinnu, um gagnrýna forystu og álags og bjargráðalíkaninu og dregur fram mikilvægi þess að viðurkenna og styðja félagslega og tilfinningalega vídd forystu í velferðarstéttum. Hún varpar gagnrýnu ljósi á þá ábyrgð sem skólastjórnendur báru í faraldrinum – án þess að fá viðeigandi umboð, stuðning eða umbun – og undirstrikar nauðsyn skýrari ábyrgðardreifingar og raunhæfs stuðnings í framtíðinni.Keywords
This publication has 30 references indexed in Scilit:
- School Leaders within the Icelandic Education System: Complex Roles, Multilevel Relations, and Fragmented Support2023
- Sweden – Good Will on All Governance Levels Is Not Enough to Create Sustainable Improvement2023
- Policy Demands, Expectations, and Changed Leadership Roles During the COVID-19 Crisis: Critical Comparative Case Studies from Denmark and Iceland2023
- Crisis policy enactment: primary school leaders’ responses to the Covid-19 pandemic in EnglandJournal of Education Policy, 2022
- Suppressing and sharing: how school principals manage stress and anxiety during COVID-19School Leadership & Management, 2021
- Pressures and influences on school leaders navigating policy development during the COVID‐19 pandemicBritish Educational Research Journal, 2021
- COVID 19 – school leadership in disruptive timesSchool Leadership & Management, 2020
- Understanding the burnout experience: recent research and its implications for psychiatryWorld Psychiatry, 2016
- Job Demands–Resources Theory2014
- Disrupting notions of leadership from feminist post‐colonial positionsInternational Journal of Leadership in Education, 2010