Útflutningur hráefna: Hagræn áhrif
Open Access
- 9 October 2020
- journal article
- research article
- Published by Institute of Business Research in Tímarit um viðskipti og efnahagsmál
- Vol. 17 (1) , 89-100
Abstract
Ein af meginniðurstöðum hagfræðinnar er að óheft alþjóðaviðskipti bæti nýtingu framleiðsluþátta og auki heimsframleiðslu. Með vísan til hennar hefur verið lögð á það nokkur áhersla í efnahagsskipulagi heimsins að gera milliríkjaviðskipti sem frjálsust. Frjáls milliríkjaviðskipti krefjast þess að þjóðir sem búa yfir verðmætum hráefnum svo sem jarðefnum, orkulindum eða fiskistofnum selji þessi hráefni hæstbjóðanda. Sá er oft staðsettur erlendis þar sem iðnvæðing er háþróuð og markaðir stórir. Heimaríkið verður því iðulega útflutningsland hráefna, en úrvinnsla þeirra fer fram erlendis. Í þessari grein verður reynt að varpa ljósi á ýmsar hagrænar hliðar á útflutningi hráefna. Nánar tiltekið verður leitað svara við eftirtöldum spurningum: Er útflutningur hráefna til þess fallin að auka landsframleiðslu í útflutningslandinu? Sé svo munu þá allir hagnast? Mun útflutningslandið eflast á aðra mælikvarða, t.d. fólksfjölda? Eykur svona útflutningur heimsframleiðsluna? Niðurstöðurnar eru í megindráttum að óheft alþjóðaviðskipti leiði til þess að samanlögð landsframleiðsla útflutningslands og innflutningslands vaxi, en vera kunni að landsframleiðsla í útflutningslandi hráefna lækki og fólki fækki. Seljendur hráefnanna muni á hinn bóginn ávallt hagnast.Keywords
This publication has 5 references indexed in Scilit:
- Where Ricardo and Mill Rebut and Confirm Arguments of Mainstream Economists Supporting GlobalizationJournal of Economic Perspectives, 2004
- Another Look at the Export of Raw Materials and Economic GrowthAmerican Sociological Review, 1982
- The Export of Raw Materials and Economic Growth: A Cross-National StudyAmerican Sociological Review, 1977
- The Gains from International Trade Once AgainThe Economic Journal, 1962
- An Inquiry into the Nature and Causes of the Wealth of Nations.The Economic Journal, 1904