Að þessu sinni eru birtar niðurstöður frá sporðamælingum síðustu tveggja ára. Alþjóðlega jöklavöktunarstofnunin World Glacier Monitoring Service, sem hýsir sporðamælingar á jöklum um allan heim, hefur farið þess á leit að niðurstöðum mælinga á hverju hausti sé skilað eins fljótt og auðið er. Sporðamælingar félagsins munu því hér eftir verða birtar innan þess árs sem þær eru framkvæmdar. Breyting er gerð á framsetningu gagnanna í þessum pistli og einungis eru birtar í töflu nýjustu mælingar, en allar mælingar er hægt að nálgast á jöklavefsjánni www.islenskirjoklar.is. Fjölmargir sjálfboðaliðar félagsins fóru til mælinga á haustmánuðum 2023 og má telja víst að gott veður í mestallt haust hafi haft sitt að segja um góðar heimtur, en alls bárust tölur frá 53 sporðamælistöðum. Árið á undan bárust upplýsingar frá um 40 sporðamælistöðum. Að undanförnu hefur það færst í aukana að nota fjarkönnunargögn, bæði loftmyndir og gervitunglamyndir, til þess að meta breytingar á stöðu sporðanna. Annars vegar þar sem aðgengi er orðið erfitt vegna stækkandi jökullóna og breytinga á árfarvegum og hins vegar á stöðum þar sem ekki hefur gefist tækifæri til þess að fara til mælinga í einhvern tíma af ýmsum ástæðum. Langflestir jökulsporðar hörfa og er breytingin mest á stærri skriðjöklum Vatnajökuls, Langjökuls og Mýrdalsjökuls, en margir sporðar hörfa árlega um 100–200 m. Einnig hafa sums staðar hlutar af lífvana sporðum losnað frá og hafa þeir þá jafnvel styst um allt að 400 m, svo sem á Jökulhálsi á Snæfellsjökli og Brókarjökli í sunnanverðum Vatnajökli. Örlítill framgangur er í Falljökli, Hrútárjökli og Svínafellsjökli.