Álitamál tengd innleiðingu hæfnimiðaðs námsmats í skyldunámi
Open Access
- 25 February 2020
- journal article
- Published by The National and University Library of Iceland in Netla
Abstract
Rannsóknastofa um námskrár, námsmat og námsskipulag stóð fyrir tveimur málþingum um námskrár og námsmat á vordögum 2019. Gestur fyrra málþingsins var hollenski námskrárfræðingurinn Jan van den Akker og á seinna málþinginu fluttu fimm hérlendir sérfræðingar erindi um innleiðingu nýs námsmatskerfis í skyldunámi. Undanfarin misseri hefur átt sér stað umræða um þetta kerfi eins og það var kynnt í núgildandi aðalnámskrá fyrir skyldunám. Skotið hafa upp kollinum áhugaverð álitamál og spurningar þessu tengdar. Þar má í fyrsta lagi nefna spurninguna um miðlæga samræmingu hæfniviðmiða og mats. Í öðru lagi beinast augu manna að faglegri ábyrgð kennara og um leið vaxandi vinnuálagi þeirra við námsmat sem er samofið námi og kennslu. Í þriðja lagi þarf að gefa nýjum hugtökum gaum og beitingu þeirra eða öllu heldur nýjum orðum yfir kunnugleg hugtök. Í fjórða lagi koma við sögu gamalkunnar hugmyndastefnur í námskrárfræðum og áhrif þeirra á setningu markmiða og hæfniviðmiða. Loks hafa vaknað spurningar um samband leiðsagnarmats og lokamats og aðferðir þar að lútandi. Markmið greinarinnar er að rýna nánar í þessi álitamál með vísan í rannsóknir og kenningar annars vegar og hins vegar erindi þeirra sem töluðu á málþingunum. Meginniðurstaða höfundar er að víðtækt mat á hæfni hljóti að stuðla að auknu réttmæti og þar með sanngjarnara mati öllum til meiri hagsbóta en áður tíðkaðist. Að sama skapi krefst framkvæmd slíks mats aukinnar matsfræðiþekkingar og faglegrar ábyrgðar kennara og stjórnenda. Um leið má þó ljóst vera að viðmið um hæfni og mat í hinu nýja kerfi eru á margan hátt óljós og því auknar líkur á ósamræmi í mati frá einum skóla til annars.Keywords
This publication has 10 references indexed in Scilit:
- Álitamál tengd innleiðingu hæfnimiðaðs námsmats í skyldunámiNetla, 2020
- Large‐scale curriculum reform in Finland – exploring the interrelation between implementation strategy, the function of the reform, and curriculum coherenceThe Curriculum Journal, 2017
- Inside the Black Box: Raising Standards through Classroom AssessmentPhi Delta Kappan, 2010
- Lessons from around the world: how policies, politics and cultures constrain and afford assessment practicesThe Curriculum Journal, 2005
- Changing Schools: Progressive Education Theory and Practice, 1930-1960History of Education Quarterly, 1997
- The effects of feedback interventions on performance: A historical review, a meta-analysis, and a preliminary feedback intervention theory.Psychological Bulletin, 1996
- Key Concepts for Understanding CurriculumBritish Journal of Educational Studies, 1992
- The Plural Worlds of Educational ResearchHistory of Education Quarterly, 1989
- How Teachers Taught: Constancy and Change in American Classrooms 1890-1980Journal of Policy Analysis and Management, 1984
- Handbook on Formative and Summative Evaluation of Student LearningStudies in Art Education, 1972