Kynjað starfsumhverfi kvenkyns nýliða í grunnskólakennslu
Open Access
- 6 December 2024
- journal article
- Published by The National and University Library of Iceland in Netla
Abstract
Rannsóknin er um hvernig nýlega brautskráðum kvenkyns kennurum í grunnskólum vegnaði í starfinu fyrstu árin, að hvaða leyti starfsumhverfi þeirra var kynjað og kvenvætt, og hvað reyndist styðjandi og hvað krefjandi. Greinin er byggð á viðtölum við fjóra kvenkyns nýliða sem rætt var við þrisvar til fjórum sinnum, á eins til tveggja ára tímabili. Konurnar fjórar voru á aldrinum 27–32 ára haustið 2021 þegar fyrstu viðtölin fóru fram og höfðu frá engri starfsreynslu til þriggja ára í fullu starfi sem kennarar eða leiðbeinendur. Fáir karlar voru að störfum með ungu konunum og þannig unnu kvenkyns kennararnir hver með annarri í margvíslegu teymissamstarfi og með kvenkyns stuðningsfulltrúum – með frekar fáum undantekningum; skólarnir sem vinnustaðir voru að miklu leyti kvennavinnustaðir. Viðmælendum okkar fannst munur á væntingum og kröfum til stuðningsfulltrúa innan skólanna eftir kyni. Minni kröfur væru gerðar til karlkyns stuðningsfulltrúa og þá virtust þeir bera minni ábyrgð. Í stöku tilvikum fannst þeim sama viðhorf eiga við um karlkyns kennara. Þeir styðjandi og krefjandi þættir sem voru mest áberandi voru víðtækt teymissamstarf kennaranna og samstarf við stuðningsfulltrúa. Viðmælendur upplifðu að teymissamstarf, dreifing álags og stuðningur samkennara væru miklir kostir við að vinna í teymi. Teymissamstarfið hjálpaði kennurunum ungu við að komast inn í starfið og veittist mikilvægur stuðningur við nýliðana. Vinna með stuðningsfulltrúunum reyndist vera krefjandi þáttur á sama tíma og starf þeirra var nauðsynlegt. Í sumum tilvikum var hlutverk þeirra óljóst. Höfundar telja að gjarna megi formgera nýliðaleiðsögn í kennsluteymum og brýn þörf sé á að skýra betur hlutverk stuðningsfulltrúa.Keywords
This publication has 29 references indexed in Scilit:
- Newly qualified teachers’ experiences of support in a micro-political perspectiveScandinavian Journal of Educational Research, 2023
- Maslow’s Hammer: teacher assistant research and inclusive practices at a crossroadsEuropean Journal of Special Needs Education, 2021
- The networking teacher in action: A qualitative analysis of early career teachers' induction processTeaching and Teacher Education, 2020
- Scaffolding learning for independence: Clarifying teacher and teaching assistant roles for children with special educational needsLearning and Instruction, 2015
- ‘I can sort of slot into many different roles’: examining teacher aide roles and their implications for practiceSchool Leadership & Management, 2015
- Gender, teaching and care: a comparative global conversationGender and Education, 2014
- Being caring and disciplinary – male primary school teachers on expectations from othersGender and Education, 2014
- Gendered Work2014
- Men teachers and the “feminised” primary school: a review of the literatureEducational Review, 2012
- Gender balance/gender bias: the teaching profession and the impact of feminisationGender and Education, 2008