Jökulárið 2022–2023 var afkoma mæld á um 120 stöðum á stærri jöklum landsins. Mælt var í 68 punktum á Vatnajökli (frá 1992), 20 punktum á Hofsjökli (frá 1988), 25 punktum á Langjökli (frá 1997) og tveimur á Mýrdalsjökli (frá 2001). Árið 2022 var afkoma mæld í nokkrum punktum á Tindfjallajökli, Torfajökli og Eyjafjallajökli en aðstæður til mælinga reyndust ekki hagstæðar vorið 2023. Stefnt er að því að viðhalda þeim mælingum eftir aðstæðum hverju sinni. Vetrarafkoma í hverjum punkti er metin með mælingu rúmmáls og massa kjarna í gegnum vetrarsnjóinn, en sumarafkoma út frá aflestri á lengd stiku eða vírs sem komið er fyrir í borholu að vori. Um þessar mundir má líta svo á að nýtt jökulár hefjist um 1. október, enda eru þá fyrstu snjóar yfirleitt fallnir á jökla landsins. Oftast er nú farið til haustmælinga á leysingu um það leyti. Snjósöfnun vetrarins er mæld í vorleiðöngrum nærri mánaðamótum apríl/maí. Hér er gerð grein fyrir helstu niðurstöðum ársins, en afkomugögn eru aðgengileg á vefsíðunni https://islenskirjoklar.is. Þar má einnig finna lýsingar á aðferðum og hugtökum, sem beitt er við afkomumælingar.