„Að slepptu tjillinu": Sjálfstæður forsetningarliður með lýsingarhætti
Authors:
- Ingunn Hreinberg IndriðadóttirIIIngunn Hreinberg Indriðadóttir
- Þórhallur EyþórssonÞEÞórhallur Eyþórsson
Open Access
- 1 November 2024
- journal article
- Published by The National and University Library of Iceland in Orð og tunga
- Vol. 26
Abstract
Sjálfstæður forsetningarliður með lýsingarhætti (SFL) er íslensk setningagerð sem hefur hingað til lítið verið fjallað um, hvað þá að hún hafi verið greind málfræðilega á fullnægjandi hátt. Unnt er að skilgreina SFL sem smásetningu sem inniheldur frumlagsnafnlið og lýsingarhátt í nútíð eða þátíð þar sem fallinu er stjórnað af forsetningunni að. Í forníslensku koma bæði þágufalls- og þolfallsnafnliðir fyrir í setningagerðinni en í nútímaíslensku virðist aðeins vera dæmi um þágufallsliði. Enn fremur er dreifing lýsingarháttar nútíðar og þátíðar ólík í forn- og nútímaíslensku. Auk þess eru hliðstæðar setningagerðir til í skyldum málum, bæði innan og utan germönsku (t.d. í latínu og grísku). Lýsing okkar á SFL í nútímaíslensku byggir á ítarlegri vefrannsókn á setningagerðinni. Þessi aðferð var notuð til að sýna fram á að SFL er tiltölulega algengur í nútímaíslensku, bæði í formlegum og óformlegum málaðstæðum. Flest dæmin sem eru sýnd hér eru úr vefrannsókninni en önnur voru metin af fámennum hópi málnotenda í óformlegri matskönnun. Meðal þeirra atriða sem eru tekin til skoðunar eru setningafræðilegt hlutverk smásetningarinnar, málfræðihlutverk nafnliðarins og sagnanna, tíða- og horfasamband í SFL og orðaraðarmynstur innan setningagerðarinnar.Keywords
This publication has 1 reference indexed in Scilit: