Staðbundnir þingmenn í alþjóðlegum heimi: þingerindrekstur íslenskra þingmanna
Open Access
- 18 June 2025
- journal article
- Published by Institute of Public Administration and Politics - Icelandic Review of Politics and Administration in Icelandic Review of Politics & Administration
- Vol. 21 (1) , 35-58
Abstract
Markmið þessarar rannsóknar er að greina hlutverk þingmanna í alþjóðakerfinu, og getu þeirra til nýta reynslu úr alþjóðlegu þingmannastarfi til að hafa áhrif á ákvarðanatöku og stefnumótun sinna heimaríkisstjórna. Einnig er rýnt í hvernig þjóðþing geta betur tryggt að þingmenn nýti reynslu úr alþjóðastarfi heima fyrir. Kynntar eru niðurstöður fyrsta tilviks í stærri samanburðarrannsókn, Alþingi Íslendinga, en Alþingi tekur þátt í starfi átta mismunandi alþjóðlegra þingmannasamtaka. Rannsóknin leggur grunn að fræðilegri umfjöllun um alþjóðastarf, sem hefur lítið verið rannsakað, og auknum skilningi á alþjóðastarfi Alþingis. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við sitjandi og fyrrverandi alþingisþingmenn og embættismenn. Verklagi grundaðrar kenningar og þemagreiningar var beitt til að draga fram helstu þemu úr viðtölum. Er varðar hlutverk þingmanna í alþjóðakerfinu voru helstu þemu öflun og miðlun þekkingar og reynslu, aðhald við stjórnvöld, og hagsmunagæsla fyrir Ísland. Er varðar getu alþingismanna til nýta reynslu úr alþjóðastarfi heimafyrir voru helstu þemu samþætting alþjóðastarfs og þingstarfa á Alþingi, almenningsálit, viðhorf framkvæmdavaldsins gagnvart aðkomu þingmanna að utanríkismálum, og áhugi fjölmiðla. Yfirgnæfandi meirihluti viðmælenda taldi alþjóðastarf Alþingis ekki nægilega vel ofið inn í störf þingsins, viðhorf framkvæmdavaldsins neikvætt, almenningsálit mjög neikvætt og áhugaleysi fjölmiðla nær algjört. Er varðar sóknarfæri Alþingis í þessu sambandi komu tvö þemu fram: skipulag alþjóðastarfsins í grunninn, og tilteknar leiðir til betri samþættingar alþjóðastarfs og almennra þingstarfa. Endurtekið stef hjá viðmælendum var að setja á fót eins konar yfiralþjóðanefnd sem héldi utan um alþjóðastarfið, og að auka samstarf á milli löggjafar- og framkvæmdavaldsins, og alþjóða- og fastanefndaKeywords
This publication has 10 references indexed in Scilit:
- Cultural Diplomacy of Uzbekistan and Shanghai Cooperation Organization in the Framework of the Shanghai Cooperation Organization (SCO)International Journal of Social Science and Human Research, 2022
- Democratic accountability of international organizations: Parliamentary control within the Council of Europe and the OSCE and the prospects for the United NationsCooperation and Conflict, 2010
- Transnational Parliamentary Assemblies: A Remedy for the Democratic Deficit of International Governance?West European Politics, 2008
- Building Democratic and Responsible Global Governance: The Role of International Parliamentary InstitutionsParliamentary Affairs, 2008
- Democracy Across Borders: Parliamentarians and International Public SpheresJavnost - The Public, 2008
- Parliamentary DiplomacyThe Hague Journal of Diplomacy, 2007
- Using thematic analysis in psychologyQualitative Research in Psychology, 2006
- Qualitative Research in Counselling and Psychotherapy2001
- Diplomacy and domestic politics: the logic of two-level gamesInternational Organization, 1988
- Peace Movement in EuropeAmerican Journal of Sociology, 1896