VGVilborg Ása Guðjónsdóttir

Vilborg Ása Guðjónsdóttir

*This is an algorithmically generated author record based on publicly available information.

Current Organizations / Institutes

The organizations/institutes from the scholar's latest article


Vilborg Ása Guðjónsdóttir has a total of 1 co-authors. Here are the top co-authors by number of shared publications:


Latest Publications

  • Open Access

    Staðbundnir þingmenn í alþjóðlegum heimi: þingerindrekstur íslenskra þingmanna

    by Vilborg Ása Guðjónsdóttir, Silja Bára Ómarsdóttir

    Markmið þessarar rannsóknar er að greina hlutverk þingmanna í alþjóðakerfinu, og getu þeirra til nýta reynslu úr alþjóðlegu þingmannastarfi til að hafa áhrif á ákvarðanatöku og stefnumótun sinna heimaríkisstjórna. Einnig er rýnt í hvernig þjóðþing geta betur tryggt að þingmenn nýti reynslu úr alþjóðastarfi heima fyrir. Kynntar eru niðurstöður fyrsta tilviks í stærri samanburðarrannsókn, Alþingi Íslendinga, en Alþingi tekur þátt í starfi átta mismunandi alþjóðlegra þingmannasamtaka. Rannsóknin leggur grunn að fræðilegri umfjöllun um alþjóðastarf, sem hefur lítið verið rannsakað, og auknum skilningi á alþjóðastarfi Alþingis. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við sitjandi og fyrrverandi alþingisþingmenn og embættismenn. Verklagi grundaðrar kenningar og þemagreiningar var beitt til að draga fram helstu þemu úr viðtölum. Er varðar hlutverk þingmanna í alþjóðakerfinu voru helstu þemu öflun og miðlun þekkingar og reynslu, aðhald við stjórnvöld, og hagsmunagæsla fyrir Ísland. Er varðar getu alþingismanna til nýta reynslu úr alþjóðastarfi heimafyrir voru helstu þemu samþætting alþjóðastarfs og þingstarfa á Alþingi, almenningsálit, viðhorf framkvæmdavaldsins gagnvart aðkomu þingmanna að utanríkismálum, og áhugi fjölmiðla. Yfirgnæfandi meirihluti viðmælenda taldi alþjóðastarf Alþingis ekki nægilega vel ofið inn í störf þingsins, viðhorf framkvæmdavaldsins neikvætt, almenningsálit mjög neikvætt og áhugaleysi fjölmiðla nær algjört. Er varðar sóknarfæri Alþingis í þessu sambandi komu tvö þemu fram: skipulag alþjóðastarfsins í grunninn, og tilteknar leiðir til betri samþættingar alþjóðastarfs og almennra þingstarfa. Endurtekið stef hjá viðmælendum var að setja á fót eins konar yfiralþjóðanefnd sem héldi utan um alþjóðastarfið, og að auka samstarf á milli löggjafar- og framkvæmdavaldsins, og alþjóða- og fastanefnda